|
Uppskriftir úr kokkakeppni sem fram fór í Rimaskóla vorið 2007 |
||
|
Nautalund fyllt með gæsalifur og Fondant kartöflum 1. sæti í kokkakeppni Rimaskóla 2007. Arnar, Kjartan og Sindri.
180 g nautalund 20 g gæsalifur (pate de foie gras) 2 sneiðar úrvalsbeikon 1 msk. smjör til steikingar Salt og svartur pipar úr kvörn ½ tsk. Armagnac ( koníak eða brandí)
Sósan: 1 dl nautasoð (1 ½ tsk. nautakraftur og 1 dl kalt vatn) 2 tsk. armagnac (koníak eða brandí) 1 dl óáfengt rauðvín 3 msk smjör og 1 tsk. rifsberjasulta
Aðferð:
Lagið sósuna:
Fondant kartöflur:
______________________________________
Gullið og grænt kjúklingasalat 3. sæti í kokkakeppni Rimaskóla 2006 Sesselía og Vigdís
1 mangó skorið í u.þ.b. 1 cm ferkantaða bita ½ knippi kóríander grófsaxað 1 vorlaukur skorinn smátt 1-2 rauð chilialdin (eftir smekk), fræhreinsuð og fínsöxuð Safi úr 1-2 límónum (eftir smekk) 2 kaldar steiktar kjúklingabringur skornar í bita 1 fennika (fennikuhöfuð) Nokkrir dropar ristuð sesamolía 2 tsk. fínrifinn börkur af lime til að skreyta diskinn
AÐFERÐ:
Parmesan kex 1 dl rifinn parmesanostur ½ msk. hveiti Blandið hveitinu og rifna ostinum vel saman. Bakið í 180° heitum ofni (undir/yfirhiti og blástur) í 3-5 mínútur Setjið ofan á salatið þannig að kexið myndi turn. ______________________________________ Kjúklingastrimlar með tómatmauki og sætri kartöflumús Ástrós, Ásdís, Birta og Guðfinnur.
2 kjúklingabringur 4 tómatar 1 sæt kartafla 2 hvítlauksrif 1 shallotlaukur 1 blaðlaukur Ferskt timian (2 greinar) 1rautt chili ½ tsk. hvítlaukssalt í músina (minnka salt á móti) ½ tsk. paprikuduft í músina Ólífuolía til steikingar og í tómatmauk
Aðferð:
Sæt mús:
Tómatmauk:
Uppsetning:
______________________________________
Tortellini steikt á taílenska vísu með kjúklingi, engifer, vatnakastaníum og sítrónugrasi með ídýfu Áróra, Dagný og Lilja
1 þumalstór biti af nýjum engifer, afhýddur 1 hvítlauksgeiri, afhýddur 1 ½ stöngull sítrónugras, ystu blöðin fjarlægð, saxaðir 3 úrbeinuð kjúklingalæri 1 vænn hnefi af fersku kóríander, leggirnir með 1 msk. sesam olía 1 lítið egg (eða hálft slegið egg) 1 kúfuð matskeið maíssterkja (maíssena mjöl) 1 hnefi vatnakastaníur úr dós Salt og nýmalaður svartur pipar Heimatilbúið eða keypt pastadeig Ólífuolía
Aðferð: 1. Gerið engifer, hvítlauk og sítrónugras að fíngerðu mauki í matvinnsluvél. 2. Bætið kjúklingakjötinu við og látið vélina ganga í mínútu í viðbót. 3. Setjið allt sem eftir er út í og blandið saman í rykkjum þangað til deigið er mjúkt og fínt. 4. Fletjið pastað mjög fínt út og búið til tortellini. 5. Setjið það í sjóðandi saltað vatn og sjóðið í 3-4 mínútur. 6. Færði bögglana upp með fiskispaða og setjið þá á heita pönnu með tveimur skvettum af ólífuolíu. 7. Steikið þar til þeir eru orðnir stökkir og gulbrúnir öðrum megin. 8. Takið bögglana strax af pönnunni og berið þá fram með dýfunni.
Dýfan: 6 msk. soyjasósa 2 msk. hrísgrjónavínedik eða hvítvínsedik 1 msk. sykur ¼ rauður chili (fræhreinsaður og skorinn í fínar sneiðar) Nokkur grófsöxuð kóríander blöð |
Pistasíu og parmesan þorskhnakki með papaja og kóríander salati og malt og appelsín sírópi 2. sæti í kokkakeppni Rimaskóla 2007. Alda R., Helena, María og Viktoría
200 g þorskhnakki ¾ dl fínrifinn parmesanostur 1 tsk. fínrifinn sítrónubörkur ½ dl muldar pistasíuhnetur ½ tsk. Svartur pipar ½ tsk. Maldon salt
Snyrtið þorskhnakkann. Myljið pistasíurnar vel í mortéli. Blandið öllu nema sítrónuberki saman við pistasíurnar. Veltið fiskinum vel upp úr hnetu og parmesanblöndunni. Dreypið nokkrum dropum af ólífuolíu yfir fiskinn. Bakið í ofni við 100°C í 8-10 mínútur eða þar til hann er meðalsteiktur.
Kúskús 100 g kúskús 2 ½ dl kjúklingasoð (2 ½ dl vatn og 1 kjúklingateningur) 1 ½ tsk. sambal oelek (chilimauk) 1 tsk. fínrifinn sítrónubörkur ½ tsk. rautt chili, fræhreinsað og skorið smátt. Nokkur smátt söxuð kóríanderlauf
Aðferð:
Malt og appelsín síróp 1flaska maltöl ½ l appelsíon 1 tsk soyasósa 1 tsk. hrísgrjónaedik Sjóðið maltið og appelsínið rólega niður í uþb. 1 dl og bætið þá soyasósu og ediki út í.
Papaja og kóríander salat 90 g papaya ½ búnt kóríanderlauf Skerið papaya í fíngerða strimla (julienne). Tínið laufin af kóríanderstilkunum. Blandið saman og setjið með á diskinn.
______________________________________ Fylltur kjúklingur með gulrótum, spergli og fersku salati. Snædís og Sandra
2 stk kjúklingabringur 8 g sólþurrkaðir tómatar 1 hvítlauksgeiri 50 g grænar ólífur 2 stk skallottlaukar salt og pipar ½ lítið box fetaostur (plastfilma og álpappír) Aðferð: 1. Afhýðið hvítlauk og skalottlauka. 2. Maukið sólþurrkaða tómata, hvítlauk, skalottlauka, fetaost og ólílfur saman í matvinnsluvél. 3. Skerið í kjúklingabringurnar þannig að vasi myndist á hliðinni. 4. Fyllið kjúklingabringurnar með maukinu og kryddið með salti og pipar. 5. Pakkið kjúklingabringunum inn í plastfilmu og síðan í álpappír. 6. Eldið í 200°C heitum ofni í 18 mínútur.
Salat: 100g klettasalat 60 g beikon steikt þar til stökkt og þerrað á pappír Nokkrar grófar flögur parmesanostur
Gulrætur, spergill og sósa: 2 fallegar meðalstórar gulrætur 2 frekar stórir grænir sperglar/aspas 2 dl kjúklingasoð (2 dl kalt vatn og 1 ½ teningur kjúklingakraftur) ½ tsk. salt og ½ tsk nýmalaður svartur pipar 2 tsk. maple sýróp ½ tsk. soyasósa ½ tsk. mjög smátt saxaði ferskt engifer 1 msk. smjör Aðferð: 1. Hreinsið gulræturnar vel og skerið í tvennt eftir endilöngu. 2. Skerið svo hvern helming í 2 hluta, þvert eftir miðju. 3. Brjótið neðsta trénaða hlutann af sperglinum. 4. Látið suðuna koma upp á kjúklingasoðinu í meðalstórum potti. 5. Bætið salti, pipar, engifer, soya og sýrópi í og síðan gulrótunum. 6. Látið gulræturnar sjóða í 3 mínútur. 7. Bætið sperglinum í og sjóðið áfram í 3 mínútur.
______________________________________ Tagliatelle kjúklingur með fersku salati og nýbökuðu brauði Baldur og Símon
Kjúklingurinn: 2 kjúklingabringur skornar í strimla 35 g engifer rifið niður 2 hvítlauksrif Ólífuolía Salt og pipar ½ stór kjúklingateningur leystur upp í 2 dl af heitu vatni ¼ matreiðslurjómi
Kjúklingabringurnar eru steiktar á pönnu í ólífuolíunni þangað til þær eru orðnar hvítar. Marinn hvítlaukur og engifer sett yfir. Kjúklingasoði og rjóma hellt yfir, saltað og piprað og soðið á pönnunni í 15 mínútur.
Pasta ½ pakki af Grand ítalian tagliatelle al uovo pasta Sesam olía Salt Pastað sett í pott með léttsöltuðu sjóðandi vatni og soðið í 9 mínútur. Sigtað, hellt í skál og sesam olíu hellt yfir. Blandað saman við kjúklinginn í skál.
Naan brauð 4 dl hveiti ½ tsk. Matarolía ½ tsk. Salt ½ tsk matarsódi 1 ½ tsk. Þurrger 1 ½ dl vel volgt vatn 1 marið hvítlauksrif
Allt blandað saman í skál. Hnoðað vel og látið lyfta sér í 20 mínútur á hlýjum stað. Rúllið í lengju og skiptið í 4 bita. Flatt út með höndum í u.þ.b. ½ cm. þykkar kökur Pikkið í kökurnar með gaffli beggja megin. Hitið þurra pönnu á meðalhita og bakið brauðin á báðum hliðum þangað til þau hafa lyft sér og eru orðin brúnflekkótt. Penslið brauðin með örlitlu bræddu smjöri og dreifið ögn af hvítlaukssalti yfir.
Salat Klettasalat 1. mak olía 2 dropar sítrónusafi örlítið af grófrifnum parmesanosti Blandið olíu og sítrónusafa saman í skál, hristið salatið í skálinni, setjið á disk og dreifið parmesan yfir. ______________________________________
|
|