Myndbrot úr sögu Rimaskóla

 

Snemma beygist krókurinn. Á ţessari mynd frá vorinu 1998 má sjá systurnar Arndísi Ýr og Júlíu Rós Hafţórsdćtur ásamt Helga skólastjóra og Birni Bjarnasyni ţáverandi menntamálaráđherra. Ráđherra afhenti Arndísi verđlaun fyrir tillögu í Nýsköpunarsamkeppni grunnskóla. Júlía Rós var skráđ í sex ára bekk ţetta vor og virđist stolt yfir afreki stóru systur. Ţćr systur eru  báđar miklar afreksstúlkur. Arndís er Íslands- og Landsmótsmeistari í frjálsum íţróttum. Júlía Rós gefur systur sinni lítiđ eftir í frjálsum og er nú ţegar orđin ţekkt fyrir leikni sína í skáklistinni.
 
 

Haustiđ 2002 efndu Háskólinn og Barnasmiđjan í Grafarvogi til skemmtilegrar hönnunarsamkeppni međal grunnskólanema. Keppnin fólst í ţví ađ útbúa bíl úr LEGÓ sem átti ađ flytja bolta eftir tilbúinni braut og skila honum í mark. Liđ Rimaskóla stóđ sig mjög vel í keppninni enda vel ćfđ af Sverri Guđmundssyni kennara og Ţórhöllu liđsstjóra. Á neđri myndinni eru f.v. Regína 9-R, Heiđrún 9-R, Guđjón 9-S og Hlynur 9-S.

Rćđuliđ Rimaskóla stóđu sig einstaklega vel öll ţau sex ár sem skólinn tók ţátt í rćđukeppni grunnskóla.
Í fjögur skipti keppti skólinn til úrslita og tvisvar sinnum vann Rimaskóli keppnina. Rćđukeppni grunnskóla fór síđast fram áriđ 2001 og ţá vann Rimaskóli og hefur haldiđ titlinum og farandbikarnum síđan. Ţau Agnar Darri, Sigurjón, Hólmfríđur og Ásdís mynduđu sigursćlt liđ áriđ 2000. Ţau kepptu til úrslita gegn Réttarholtsskóla í Ráđhúsi Reykjavíkur eftir ađ hafa áđur lagt ađ velli Hólabrekkuskóla, Hagaskóla og Fellaskóla..

Fastur liđur í starfi Rimaskóla hefur veriđ heimsókn elstu nemenda leikskólanna í skólann ađ vori.
Ţessi skemmtilega mynd var tekin í mars 1998 og sýnir vćntanlega nemendur í 1. bekk koma sér vel fyrir á bókasafni skólans.
Ţau Ţórey Rán, Sigrún Anna, Ívar Örn og Jóhann Óli eru núna öllum hnútum kunnug í skólanum enda komin í 7. bekk (f. 1992).
 

 

Skákhefđin í Rimaskóla á rćtur sínar ađ rekja allt til ţess er skólinn var stofnađur 1993. Frá fyrsta skólaári hefur veriđ keppt um titilinn Skákmeistari Rimaskóla. Nöfn sigurvegaranna er skráđ á bikarinn á hverju ári. ţađ hefur veriđ draumur hvers skákáhugamanns í Rimaskóla ađ vinna bikarinn góđa og fá nafniđ sitt skráđ. Myndin var tekin viđ verđlaunaafhendingu ađ loknu skákmóti Rimaskóla 1997. Frá vinstri: Einar Jóhannes Finnbogason 8-R, skákmeistari Rimaskóla 1996, Bjarni Jóhannsson 9-T sem vann titilinn ţetta áriđ og Hallvarđur Guđni Svavarsson 9-S. Ţeir urđu í ţremur efstu sćtunum í eldri flokki.
   
Ţessi mynd úr safni Rimaskóla er af tvíburasystkinunum Kristínu Birnu og Ólafi Gauta Ólafssyni međ fyrsta frjálsíţróttabikarinn sem skólinn vann voriđ 1996. Ţeim hefur nú aldeilis fjölgađ síđan í bikaraskáp skólans. Barnasmiđjan viđ Gylfaflöt stóđ fyrir hlaupakeppni á milli grunnskólanna í Grafarvogi í nokkur ár og vann Rimaskóli keppnina í öll skiptin. Undir liđsstjórn Ninnu kennara hafa nemendur Rimaskóla haldiđ merki skólans hátt á lofti í öllum hlaupakeppnum og nokkrir nú ţegar orđiđ afreksmenn í einstaka greinum. Kristín Birna er í ţessum hópi, er í landsliđshóp Íslands í frjálsíţróttum og ein skćrasta hlaupadrottning landsins í dag.
   

"Nú styttist í jólaskemmtanir skólans og ađra viđburđi skólastarfsins sem tengjast jólunum.

Ţví er nú dregin fram mynd frá jólaskemmtun í Rimaskóla áriđ 1997. Ţćr Ásta Márusdóttir, Dagbjört Gunnarsdóttir og Helga Aradóttir voru í 7-A umsjónarbekk Katrínar Ţorvaldsdóttur og lásu jólaguđspjalliđ á fyrstu ađventuhátíđ Foreldrafélags Rimaskóla."

 

 

Ţeir Atli Steinn, Frank Ingi, Snorri og Guđjón voru nemendur Ninnu í 3-B haustiđ 1995. Ninna var umsjónarkennari B bekkjarins öll sjö ár barnaskólastigsins og hefur enginn kennari kennt sama bekknum svo lengi samfellt sem umsjónarkennari.

Ţeir Atli Steinn og Snorri útskrifuđust úr Rimaskóla voriđ 2004 eftir tíu ára skólagöngu í Rimaskóla.