Nemendur 4. bekkjar kynntu Þorrann Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Web Admin   
Föstudagur, 05 febrúar 2010 17:32
thorraheimsoknNemendur 4. bekkjar í Rimaskóla fengu frábærar viðtökur á leikskólum hverfisins þegar þeir fluttu þar Þorradagskrá í máli og myndum. Krakkarnir í 4. bekk sungu þorravísur fyrir leikskólakrakkana og lásu upp mikinn fróðleik um Þorrann, fjórða mánuð vetrar samkvæmt forníslensku tímatali. Ýmislegt úr íslenskum þjóðsögum tengist Þorranum sem gaman er að fræðast um. Fyrsti þorradagur heitir öðru nafni bóndadagur. Dagskráin heppnaðist vel og nemendum til mikils sóma. (HÁ)
 
Framhaldsskólakynning Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Web Admin   
Þriðjudagur, 02 febrúar 2010 09:03

Framhaldsskólakynningin verður fimmtudaginn 4. febrúar n.k. á sal Borgarholtsskóla frá kl. 17:30 –19:00.

Lesa meira...
 
Dagur með bónda fyrir nemendur í 7. bekk Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Web Admin   
Mánudagur, 01 febrúar 2010 11:56
Dagur med bondaÍ nokkur ár hefur samstarfssamningur verið í gildi á milli Bændasamtakanna og Rimaskóla um að fá bónda í heimsókn til að uppfræða nemendur um störfin í sveitinni. Berglind Hilmarsdóttir bóndi undir Eyjafjöllum heimsótti nemendur 7. bekkjar og var afar ánægð með viðtökurnar. Börnin hlustuðu af athygli og spurðu gagnlegra spurninga. Fræðslan tók fjórar kennslustundir. Rimaskóli þakkar Berglindi bónda fyrir ánægjulega heimsókn.(HÁ)
 
Fyrsta föstudagsfjörið á árinu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Web Admin   
Laugardagur, 23 janúar 2010 10:16

fostudagsfjor 2bNemendur í 2- B skemmtu nemendum og foreldrum sínum á fyrsta föstudagsfjöri ársins. Söngur og dans voru allsráðandi á dagskrá bekkjarins. Strákarnir sungu um hann Bjössa á mjólkurbílnum og stúlkurnar tóku síðan við, settu upp svunturnar, byrjuðu að baka í form og elda í pott. Bekkurinn dansaði Fugladansinn og í lokin fengu nemendur  alla viðstadda til að syngja skólasönginn hátt og snjallt. Áhorfendur skemmtu sér vel og fjölmargir stoltir foreldrar sem lögðu leið sína á föstudagsfjörið þáðu veitingar í boði skólans á eftir. (HÁ)

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 32