Nýtt nemendaráð unglingadeildar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
föstudagur, 28 maí 2010 12:51

nytt nemendaradFramboðsræður fyrir nemendaráð unglingadeildar fyrir næsta skólaár voru haldnar í hátíðarsal Rimaskóla 27.maí. Frambjóðendur þurftu  að vera með framboðsræður þar sem þeir kynntu sig fyrir nemendum og helstu áherslur sínar fyrir félagsstarfið næsta vetrar. Það var gaman að sjá hve margir nemendur buðu sig fram, alls  33 nemendur úr  7., 8. og 9.bekkjum. Sumir voru vel undirbúnir og mættu jafnvel með veitingar til að gefa kjósendum og aðrir voru mjög hnyttnir í orðum og uppskáru hlátur og bros.

Lesa meira...
 
Frumlegt fimmtudagsfjör hjá 7-C Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
fimmtudagur, 20 maí 2010 11:51
fimmtudagsfjor hja 7-cNemendur Ingibjargar í 7- C sýndu það og sönnuðu á fimmtudagsfjöri að þar eru á feðinni hæfileikaríkir krakkar, greinilega tilbúnir að takast á við unglingsárin og láta þá til sín taka. Eftir meinfyndið upphafsatriði úr herskóla kynntu krakkarnir myndband sem þau höfðu unnið hjálparlaust og það ekkert smáflott. Handrit, leikstjórn, upptökur og hljóð, allt fagmannlega unnið og troðfullur salur áhorfenda skemmti sér konunglega yfir spauginu frá upphafi til enda myndbandsins. Lokaatriði bekkjarins var Skinkulagið sem höfðar djúpt til þessa aldurshóps. Foreldrar sem fjölmenntu þáðu veitingar að lokinni dagskrá og voru skiljanlega stoltir og ánægðir með frammistöðu krakkanna. (HÁ)
 
10. bekkur heimsótti skólaþing Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
miðvikudagur, 19 maí 2010 16:35
skolathing10.bekkir heimsóttu Skólaþing sem er ótrúlega flott kennsluver þar sem nemendur setja sig í spor þingmanna. Nemendur voru settir í hlutverkaleik og fengu mismunandi stjórnmálaflokka og stefnur til að fara eftir. Síðan þurftu þeir að funda um þrjú frumvörp með tilheyrandi nefndar- og fundarsetum. Nemendur lögðu fram breytingartillögur sem voru ýmist samþykktar eða felldar. Að lokum var kosið um frumvörpin. Niðurstaða þingsins var að samþykkja stofnun  atvinnuhers og lög um kattahald til að stemma við útigangi katta. Nemendur  gleymdu því að þeir voru í hlutverkaleik og felldu með afgerandi meirihluta frumvarpið um eftirlit með tölvunotkun barna og unglinga sem var alveg þvert gegn stefnu stjórnarinnar. Spurning hvort það sé ekki bara góðs viti, að nemendur kjósi samkvæmt sannfæringu sinni? Heimsóknin fór vel fram og nemendur voru til fyrirmyndar og unnu vel.(NÓ)
 
Fjölmenni á mótttökuhátíð 6 ára barna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
þriðjudagur, 18 maí 2010 16:17
mottokuhatid 6 ara barna Skólastjórnendur Rimaskóla buðu væntanlegum nemendum 1. bekkjar á næsta skólaári og foreldrum þeirra upp á móttökuhátíð í skólanum. Búið er að ákveða hvaða kennarar komi til með að kenna börnunum og buðu þeir væntanlegum nemendum sínum inn í kennslustund. Í skólastofunni biðu krakkanna spennandi verkefni. Guðlaug Ósk aðstoðarskólastjóri var með yfirgripsmikla kynningu á skólastarfi Rimaskóla fyrir foreldra og svaraði spurningum þeirra. Í lok móttökunnar ávarpaði skólastjóri foreldra og nemendur og bauð öllum upp á kaffi og meðlæti. Hátíðin var ánægjuleg í alla staði, vor í lofti og létt yfir þeim yngri sem eldri. (HÁ)
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 4 af 45