Þær systur María Eva 6-C og Kolbrún Tinna 4-B eru ótrúlegar afreksstúlkur í íþróttum. Yfir vetrartímann leggja þær mesta ástundun á skíðaíþróttina og voru fyrir stuttu að keppa á hinu árlega Jónsmóti á Dalvík. Þar reyndu með sér allir efnilegustu skíðakrakkar landsins. María Eva og Kolbrún Tinna komu, sáu og sígruðu á mótinu og hirtu öll helstu verðlaunin í sínum flokkum. Þær sigruðu báðar glæsilega í tvíkeppni þar sem keppt er í svigi og sundi. Í næstu sætum á eftir voru eingöngu norðanmenn frá dalvík og Akureyri. Eins og myndin sýnir fengu systurnar afhenta glæsilega eignarbikara að launum. Þær María Eva og Kolbrún Tinna eru ekki síðri afreksmenn í frjálsum íþróttum og hafa báðar verið öll sín skólaár í hlaupaliði Rimaskóla sem unnið hefur grunnskólahlaupið á Grafarvogsdegi frá upphafi hlaupsins. María Eva og Kolbrún Tinna æfa daglega skíði og Kolbrún Tinna var nýverið við æfingar í bænum Geilo í Noregi. (HÁ)
Sex verðlaun á stuttum tíma
Höfundur: Web Admin
föstudagur, 27 mars 2009 12:31
Hann Georg Fannar Þórðarson nemandi í 4-B Rimaskóla er mikill afreksmaður á skíðum. Nýlega kom hann heim frá Noregi eftir velheppnaða æfingaferð þar sem hann æfði við frábærar aðstæður í bænum Geilo. Árangurinn lætur ekki á sér standa. Á skíðamótum undanfarið hefur Georg Fannar unnið til sex verðlauna í svigi og stórsvigi. Yfir vetrartímann æfir Georg Fannar daglega þegar færi gefst í Bláfjöllum. Hann æfir og keppir fyrir skíðadeild Víkings. Flottur íþróttamaður. (HÁ)
Bjarklind Björk og Númi Steinn lásu til sigurs í Stóru upplestrarkeppninni
Höfundur: Web Admin
þriðjudagur, 24 mars 2009 13:14
Þau Bjarklind Björk Gunnarsdóttir og Númi Steinn Baldursson í 7-D Rimaskóla urðu í 1. og 2. sæti í úrslitum Stóru upplestrarkeppninnar í Grafarvogskirkju. Þau kepptu þar við upplesara frá Foldaskóla, Hamraskóla og Húsaskóla. Það er nánast undantekning í þessari glæsilegu keppni að tveir efstu lesararnir komi frá sama skólanum. Nemendum Rimaskóla hefur gengið vel í Stóru upplestrarkeppninni í þau 10 skipti sem skólinn hefur tekið þátt, sigrað 5 sinnum og utan einu sinni alltaf lent í verðlaunasætum.Helgi Árnason skólastjóri tók við tveimur viðurkenningarskjölum fyrir hönd Rimaskóla fyrir þennan yfirburðarárangur skólans. Umsjónarkennari Bjarklindar og Núma Steins er Ingibjörg Kristinsdóttir en þess má geta að hún kenndi einnig báðum fulltrúum Rimaskóla í keppninni í fyrra. Viðstödd keppnina var einnig Helga Bogadóttir umsjónarkennari krakkanna til fjögurra ára. Marta Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri hefur þjálfað nemendur skólans fyrir úrslitakeppnina öll þessi 10 ár með þessum líka frábæra árangri.(HÁ)
Íþróttafræði er vinsæl valgrein
Höfundur: Web Admin
mánudagur, 23 mars 2009 09:36
Íþróttafræði er vinsæl valgrein í 9.og 10.bekk. Tímarnir eru bæði bóklegir og verklegir og er einnig farið í ýmsar vettvangsferðir þar sem nemendur kynnast nýjum íþróttum. Í 9.bekk er mest farið í alhliða þjálfun og áhrif hreyfingar á heilsu og hreysti á meðan 10.bekkir kynna sér helstu knattleikina ásamt þjálffræði, íþróttasálfræði og hvernig meðhöndla eigi íþróttameiðsl. Ökklameiðsl eru algengustu íþróttameiðslin og í dag fengu 10.bekkingar að spreyta sig á því að teipa hvort annað eins og um ökklameiðsl væri að ræða. Eins og sjá má á myndunum lögðu nemendur sig fram við að bera sig fagmannlega við teipinguna. JÓ.