Nemendur Sigurbjargar í 1. bekk stóðu sig frábærlega þegar þau skemmtu fyrir troðfullum sal áhorfenda á föstudagsfjöri. Þau dönsuðu, lásu brandara og sungu hvert lagið eftir öðru. Allt var þetta vel æft og flutt hátt og skýrt. Kvæðið um hana Pálínu var vel sungið og ekki síður lagið hans Togga "Þú komst við hjartað í mér". Þá tók allur salurinn undir með hetjunum í 1. bekk. Hulda danskennari stjórnaði bekkjardansi sem allir "bangsar" dönsuðu af innlifun og vönduðu sig með spor og hreyfingar sem þeir best gátu. Sérstakir gestir 1. bekkjar á föstudagsfjörinu var fjölmennur hópur elstu nemenda á Lyngheimum. (HÁ)
Söngur og dans á föstudagsfjöri 3-A
Höfundur: Web Admin
laugardagur, 01 maí 2010 12:04
Hún var fjölbreytt og flott dagskráin sem nemendur Heiðrúnar í 3-A buðu upp á þegar þau sáu um föstudagsfjörið. Seiðandi söngur og dans, lög úr Grease og söngvaseið. Dansinn sem bekkurinn sýndi var við lag Michael Jackson sem krakkarnir höfðu æft með Huldu danskennara. Nokkrir brandarakarlar sögðu brandara sem allur salurinn skellihló af vegna þess hversu vel hann var leikinn. Að vanda voru atriðin vel æfð og vel flutt og kynningar til fyrirmyndar. Mikil ánægja var með velheppnaða dagskrá meðal nemenda og foreldra sem þáðu kaffi og kleinu í boði skólans í lokin. (HÁ)
Dúndrandi fimmtudagsfjör þrátt fyrir tæknibilun
Höfundur: Web Admin
fimmtudagur, 29 apríl 2010 12:56
Nemendur Guðrúnar Svövu gerðu það svo sannarlega gott þegar þau sáu um fimmtudagsfjörið. Þau létu það ekkert á sig fá þó að tæknin væri að stríða þeim og tafir urðu á því að skemmtunin hæfist. Dagskrá krakkanna var í formi sjónvarps heima í stofu. Heimilisfólkið flakkaði á milli sjónvarpsrása og fann bitstætt efni á öllum stöðvum. Auddi og Sveppi voru með áhugaverðan þátt þar sem helstu hnakkar landsins voru mættir. Brandarahorn Einsa stuð var frábær skemmtun og ekki síður æsispennandi keppni í Icelandic Next Top Models. Leikgleðin skein úr hverju andliti krakkanna í 6-C sem eru greinilega hæfileikarík á þessu sviði. Stoltir foreldrar fjölmenntu á sýninguna og sérstakir gestir að þessu sinni var hópur grunnskólanemenda úr Stykkishólmi sem gistu í Rimaskóla yfir nóttina. (HÁ)
Skemmtilegt í skólabúðum
Höfundur: Web Admin
miðvikudagur, 28 apríl 2010 13:21
Nemendur í 7. bekk dvelja þessa vikuna í skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði. Þegar skólastjóri var þarna á ferðinni fór ekki á milli mála að mikil ánægja ríkti meðal nemenda með alla aðstöðu og fjölbreytta dagskrá sem í boði er á staðnum. Ekki skemmir það fyrir að veðrið leikur við krakkana þessa fyrstu daga, glampandi sól frá morgni til kvöld. Nemendur eru í kennslustundum frá kl. 9:30 - 16:30 þar sem verkefnin tengjast lífríkinu, sögu og menningu og íþróttum og leikjum. Inni á milli eru frjálsir tímar og þegar sólin skín streyma krakkarnir í sundlaugina og heitu pottana síðdegis og skemmta sér saman. (HÁ)