Rimaskóli sýndi leikrit á Barnamenningarhátíð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
laugardagur, 24 apríl 2010 14:55
ronja raeningjadottirNemendur 6. bekkjar Rimaskóla sýndu leikatriði byggðu á sögunni um Ronju Ræningjadóttur á Barnamenningarhátíð Reykjavíkur. Leikstjóri þeirra er Eggert Kaaber leikari og kennari við skólann. Sýningin fór fram í Ævintýrahöllinni Fríkirkjuvegi 11 að viðstöddu fjölmenni áhorfenda. Leiksýningi vakti mikla athygli og sýningargestir sem voru bæði á leikskóla-og grunnskólaaldri fylgdust með af athygli. Í framhaldi sýningarinnar verður leikritið æft áfram og lengt, bætt við söngatriðum og sýnt nemendum Rimaskóla í grenndarskógi skólans í Grafarvogi síðustu skóladagana í vor. Í grenndarskóginum þarf enga leikmynd eða svið því það er allt til staðar í skóginum frá náttúrunnar hendi. (HÁ)
 
6. bekkur að Úlfljótsvatni Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
föstudagur, 23 apríl 2010 11:01
6_bekkur_ad_ulfljotsvatniFerð 6. bekkja í Skólabúðir að Úlfljótsvatni dagana 19. og 20. apríl gekk alveg glimrandi vel. Það var að sjálfsögðu þessum frábæru nemendum mest að þakka.Rúmlega 50 krakkar úr 6-A, 6-B og 6-C höfðu nóg fyrir stafni. Fyrri daginn fóru þau í útileiki og þrautakeppni þar sem reyndi á samstarf og samstöðu innan hópanna. Á kvöldvökuna mætti einn pabbinn með gítar og stjórnaði dúndrandi fjöldasöng með aðstoð kennara og skólastjóra. Að vanda endaði kvöldvakan á diskóteki. Vel gekk að koma hópnum í svefn enda krakkarnir útkeyrðir eftir daginn. Síðari daginn sást vel til eldgossins á Eyjkafjallajökli. Þá var gengið inn í Fossdal og farið í fánaleik. Dvölinni að Úlfljótsvatni lauk með pítsaveislu þar sem allir tóku vel til matar síns. Í bakaleið var komið við í Nesjavallavirkjun þar sem boðið var upp á kynningu og hagstæðar veitingar. (HÁ)
 
Afi og amma fengu allan 4-C í heimsókn á föstudagsfjöri Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
föstudagur, 16 apríl 2010 13:14
fostudagsfjor hja 4-cNemendur Hildar í 4-C útfærðu föstudagsfjörið með skemmtilegum hætti. Dagskráin byggðist upp á heimsókn Stebba nokkurs til afa sína og ömmu. Stebbi ákvað að taka öll sín bráðfjörugu bekkjarsystkin með. Þar á heimili var slegið upp sannkölluðu föstudagsfjöri, atriðum sem fóru misvel í þau gömlu en gerðu stormandi lukku meðal fjölmargra áhorfenda í salnum. Syngjandi sveifla, söngur og dans sýndu krakkarnir í 4-C geislandi af gleði gleði og einlæg.Á milli atriða fuku brandarar, misdýrir en góðir. Afi og amma skemmtu sér vel en virtust uppgefin í lokin. Dagskrá 4-C lauk með því að krakkarnir sungu eitt vinsælasta lagið 2010 í Rimaskóla; Hudson Bay. (HÁ)
 
Ferð á veitingastaðinn Argentínu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
fimmtudagur, 15 apríl 2010 14:05

„Mér líður svo vel í munninum að ég veit ekki hvernig ég á að vera“ (orð nemanda)

argentinuferd nemendaMánudaginn 12. apríl fóru 39 nemendur úr 9. og 10. bekk í vali í heimilisfræði ásamt skólastjóra, heimilisfræðikennara og fleirum í árlega veisluferð á Argentínu Steikhús. Prúðbúinn hópurinn mætti á staðinn með rútu og sælkerakvöldverður hófst með smakki, nautastrimlum með spínatfroðu, sem féll vel í kramið. Matseðillinn hljómaði annars upp á humarsúpu í forrétt. Steikartvennu,  lamb og naut með wok steiktu grænmeti, bakaðri kartöflu í aðalrétt og heit Valhrona súkkulaðiterta með ís í eftirrétt.

Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 6 af 45