|
Afi og amma fengu allan 4-C í heimsókn á föstudagsfjöri |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
föstudagur, 16 apríl 2010 13:14 |
 Nemendur Hildar í 4-C útfærðu föstudagsfjörið með skemmtilegum hætti. Dagskráin byggðist upp á heimsókn Stebba nokkurs til afa sína og ömmu. Stebbi ákvað að taka öll sín bráðfjörugu bekkjarsystkin með. Þar á heimili var slegið upp sannkölluðu föstudagsfjöri, atriðum sem fóru misvel í þau gömlu en gerðu stormandi lukku meðal fjölmargra áhorfenda í salnum. Syngjandi sveifla, söngur og dans sýndu krakkarnir í 4-C geislandi af gleði gleði og einlæg.Á milli atriða fuku brandarar, misdýrir en góðir. Afi og amma skemmtu sér vel en virtust uppgefin í lokin. Dagskrá 4-C lauk með því að krakkarnir sungu eitt vinsælasta lagið 2010 í Rimaskóla; Hudson Bay. (HÁ) |
|
Ferð á veitingastaðinn Argentínu |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
fimmtudagur, 15 apríl 2010 14:05 |
|
„Mér líður svo vel í munninum að ég veit ekki hvernig ég á að vera“ (orð nemanda)
Mánudaginn 12. apríl fóru 39 nemendur úr 9. og 10. bekk í vali í heimilisfræði ásamt skólastjóra, heimilisfræðikennara og fleirum í árlega veisluferð á Argentínu Steikhús. Prúðbúinn hópurinn mætti á staðinn með rútu og sælkerakvöldverður hófst með smakki, nautastrimlum með spínatfroðu, sem féll vel í kramið. Matseðillinn hljómaði annars upp á humarsúpu í forrétt. Steikartvennu, lamb og naut með wok steiktu grænmeti, bakaðri kartöflu í aðalrétt og heit Valhrona súkkulaðiterta með ís í eftirrétt.
|
|
Lesa meira...
|
|
Líflegt fimmtudagsfjör hjá 5-C |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
fimmtudagur, 15 apríl 2010 09:40 |
 Söngur, dans og léttir brandarar voru á dagskrá 5-C þegar bekkurinn bauð upp á fimmtudagsfjör í hátíðarsal skólans. Salurinn var þéttsetinn nemendum í 5. - 7. bekk auk foreldra og ættingja sem fjölmenntu. Fyrstur á svið var hann Axel karatemeistari sem sýndi leikni sína og tók nokkur bekkjarsystkini sín í kennslustund. Idolkeppnin var fyrirferðarmikil. Dómararnir reyndust langt frá því að vera á sama máli um hæfni keppenda. Í lokin sungu allir krakkarnir í 5-C eitt lag og kölluðui fram sólina og vorið. Skýrmæltir kynnar þau Torfi og Áslaug buðu foreldrum og ættingjum nemenda upp á kaffi og kleinur að lokinni skemmtun. (HÁ) |
|
Öflugt skáksamstarf fjögurra Reykjavíkurskóla |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
fimmtudagur, 15 apríl 2010 08:21 |
|
Í vetur hafa Engjaskóli, Hagaskóli, Laugalækjarskóli og Rimaskóli staðið að samstarfi á vettvangi skákiðkunar. Skólarnir eiga það sameiginlegt að standa fyrir umfangsmiklu skákstarfi skólakrakka á öllum aldri. Samstarfið felst í gagnkvæmum heimsóknum þar sem slegið er upp skákmóti á milli skólanna hverju sinni. Þátttakan hefur vaxið um helming frá upphafi samstarfsins í fyrra og í hvert sinn mæta tæplega 100 krakkar til leiks.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 7 af 45 |