Starfmenn og nemendur Rimaskóla fóru svo sannarlega í hátíðarskapi og glaðir í sinni inn í páskafríið eftir að þremur velheppnuðum þemadögum var lokið með tilkomumikilli lokahátíð. Viðfangsefni nemenda á þemadögum var "Evrópa álfan mín" . Hver bekkur fékk eitt Evrópland til að vinna með. Á lokahátíðinni blasti árangur mikillar vinnu hvarvetna við þeim rúmalega eittþúsund gestum sem sóttu skólann heim af þessu tilefni. Í ávarpi Helga Árnasonar skólastjóra kom fram að einkunnarorð skólans "Regla , metnaður og sköpun " hefðu svo sannarlega staðið undir nafni þessa daga. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ávarpaði samkomuna og hældi nemendum fyrir áhugaverða vinnu auk þess sem hann hrósaði skólanum fyrir góða frammistöðu á ýmsum sviðum. Össur fullyrti að Rimaskóli væri einn mesti afreksskóli í skáklistinni í heimi.
Krakkarnir í Rimaskóla eru sko aldeilis að standa sig, ekki bara í skólanum. Hún Hekla Nína Hafliðadóttir hefur æft og stundað fimleika frá því hún man eftir sér. Fyrir stuttu keppti hún á fimleikameistaramóti Fjölnis og þar gekk henni allt í haginn. Hún varð fimleikameistari Fjölnis í 5. þrepi og hlaut að launum bikar og verðlaunapeninga. Sterkustu greinar Heklu Nínu eru sláin og stökkin. Rimaskóli óskar þessari efnilegu stúlku til hamingju með árangurinn. (HÁ)
Rimaskóli átti sigurvegara Stóru upplestrarkeppninnar
Höfundur: Web Admin
þriðjudagur, 23 mars 2010 09:30
Arna Bjarnadóttir 7-A í Rimaskóla vann úrslitakeppni Stóru upplestrarkeppninnar 2010 í Grafarvogi. Keppnin fór fram í Grafarvogskirkju að viðstöddu fjölmenni. Rimaskóli sendi tvo frábæra keppendur. Auk Örnu keppti Erna Gunnarsdóttir 7-B í upplestrarkeppninni og stóð sig líka með miklum sóma. Þær Arna og Erna unnu Rimaskólakeppnina í byrjun mars og hafa síðan undirbúið sig af kostgæfni undir leiðsögn Mörtu aðstoðarskólastjóra. Nemendur Rimaskóla hafa verið einstaklega sigursælir í þessari keppni og var þetta í sjötta skipti sem skólinn náði 1. sæti í Stóru upplestararkeppninni. (HÁ)
Rimaskóli með yfirburði á fjölmennu Íslandsmóti í skák í Smáralind
Höfundur: Web Admin
mánudagur, 22 mars 2010 10:03
A sveit Rimaskóla vann öruggan sigur á fjölmennasta Íslandsmóti barnaskólasveita fyrr og síðar sem haldið var með glæsibrag í Vetrargarðinum í Smáralind. Sveitin fékk 30,5 vinninga af 32 mögulegum. Líkt og í fyrra þá urðu B og C sveitirnar efstar í sínum flokki. Kornungar stúlkur sem mynduðu D sveit skólans fengu verðlaun fyrir bestu stúlknasveitina. Rimaskóli vann sér enn og aftur þátttökurétt á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer í Noregi í byrjun september. Þetta er ótrúlegt afrek Rimaskólakrakka því alls tóku 52 skáksveitir með um 250 krökkum þátt í mótinu í Smáralind.