Bára varð Fjölnismeistari 2010 í hópfimleikum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
mánudagur, 22 mars 2010 11:40
fimleikameistariÁ fjölmennu innanfélagsmóti fimleikadeildar Fjölnis í hópfimleikum varð Bára Guðmundsdóttir 7-C deildarmeistari. Hún hlaut að launum glæsilegan bikar til eignar. Ekki er langt síðan Bára hóf að æfa fimleika en framfarir hennar í íþróttinni eru miklar. Skólinn óskar Báru til hamingju með frammistöðuna og óskar henni áframhaldandi velgengni á næstu mótum. (HÁ)
 
Fín frammistaða 2-A á föstudagsfjöri Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
föstudagur, 19 mars 2010 12:43
Fostudagsfjor hja 2-ANemendur Ingu í 2-A vönduðu sig virkilega þegar þau fluttu fjölbreytta skemmtidagskrá á föstudagsfjöri. Það fór ekkert á milli mála að í bekknum eru söngelskir krakkar. Þau sungu virkilega fallega lög eins og Ég er hinn frjálsi förusveinn við undirleik Magnúsar Kjartanssonar tónlistarkennara. Hulda danskennari stjórnaði þeim í Michael Jackson dansi. Þar reyndi á taktinn og tilfinninguna. Áhorfendur fylgdust með atriðunum af miklum áhuga og fögnuðu með miklu lófaklappi við lok smemmtilegrar dagskrár. Ánægjulegt var að sjá hversu margir foreldrar og gestir mættu til okkar á föstudagsfjörið. Það er okkur miklil ánægja að fá þennan stuðning þeirra við það sem skólinn er að gera fyrir utan hið hefðbundna nám. (HÁ)
 
Barnamenning á Barnaþingi 6. bekkjar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
föstudagur, 19 mars 2010 10:12
barnathing 6bekkurNemendur þriggja grunnskóla í Grafarvogi héldu barnaþing í Rimaskóla. Barnaþingið hefur verið árlegur viðburður skólanna í Grafarvogi með nemendum 6. bekkkjar og tekist vel til undir stjórn kennara og Miðgarðs sem haldið hefur utan um framkvæmd þingsins. Að þessu sinni var væntanleg barnamenningarhátíð í Reykjavík,  dagana 19. - 25. apríl, viðfangsefni þingsins. Nemendur 6. bekkjar í Rimaskóla komu mjög vel undirbúin og kynntu frábærar tillögur að dagskrá barnamenningarhátíðar. Hugmyndir eins og gönguferð á Esjuna, kökukeppni þar sem verðlaunakökurnar yrðu sýndar í Kringlunni,dansatriði með nemendum í 1. - 3. bekk, listaverk við Smáraliind og kynnisferð um Egilshöll. Barnaþingið tókst mjög vel og var nemendum 6. bekkjar og kennurum þeirra til mikils sóma. (HÁ)
 
"Stórmeistaratilþrif" á skákmóti 2. og 3. bekkjar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
miðvikudagur, 10 mars 2010 18:55
ungir skakmeistararNemendum í 2. og 3. bekk hefur gefist kostur á að æfa og þiggja skákkennslu í vetur. Björn Þorfinnsson alþjóðlegur meistari hefur kennt nemendahópi á miðvikudagsmorgnum og Sigríður Björg Helgadóttir hefur þjálfað stúlkurnar á þriðjudögum. Nú á miðri vorönn þótti ástæða til að halda skákmót í 2. og 3. bekk. Hver bekkjardeild valdi 2-3  þátttakendur og tefldar voru fimm umferðir. Þátttakendurnir brugðust ekki bekkjunum sínum því allir krakkarnir sextán sýndu mikinn áhuga og leikni og þeir bestu sýndu hreinlega snilldartakta miðað við aldur.
Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 9 af 45