|
Barnamenning á Barnaþingi 6. bekkjar |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
föstudagur, 19 mars 2010 10:12 |
 Nemendur þriggja grunnskóla í Grafarvogi héldu barnaþing í Rimaskóla. Barnaþingið hefur verið árlegur viðburður skólanna í Grafarvogi með nemendum 6. bekkkjar og tekist vel til undir stjórn kennara og Miðgarðs sem haldið hefur utan um framkvæmd þingsins. Að þessu sinni var væntanleg barnamenningarhátíð í Reykjavík, dagana 19. - 25. apríl, viðfangsefni þingsins. Nemendur 6. bekkjar í Rimaskóla komu mjög vel undirbúin og kynntu frábærar tillögur að dagskrá barnamenningarhátíðar. Hugmyndir eins og gönguferð á Esjuna, kökukeppni þar sem verðlaunakökurnar yrðu sýndar í Kringlunni,dansatriði með nemendum í 1. - 3. bekk, listaverk við Smáraliind og kynnisferð um Egilshöll. Barnaþingið tókst mjög vel og var nemendum 6. bekkjar og kennurum þeirra til mikils sóma. (HÁ) |
|
"Stórmeistaratilþrif" á skákmóti 2. og 3. bekkjar |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
miðvikudagur, 10 mars 2010 18:55 |
 Nemendum í 2. og 3. bekk hefur gefist kostur á að æfa og þiggja skákkennslu í vetur. Björn Þorfinnsson alþjóðlegur meistari hefur kennt nemendahópi á miðvikudagsmorgnum og Sigríður Björg Helgadóttir hefur þjálfað stúlkurnar á þriðjudögum. Nú á miðri vorönn þótti ástæða til að halda skákmót í 2. og 3. bekk. Hver bekkjardeild valdi 2-3 þátttakendur og tefldar voru fimm umferðir. Þátttakendurnir brugðust ekki bekkjunum sínum því allir krakkarnir sextán sýndu mikinn áhuga og leikni og þeir bestu sýndu hreinlega snilldartakta miðað við aldur.
|
|
Lesa meira...
|
|
Íslandsmeistari í fimleikum |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
þriðjudagur, 09 mars 2010 16:15 |
 Katrín Myrra Þrastardóttir nemandi í 7-C Rimaskóla náði þeim glæsilega árangri nýlega að vinna Íslandsmeistaratitil í 2. þrepi fimleika. Hún hefur æft frá unga aldri og keppir fyrir hönd Fimleikafélagsins Ármanns. Þjálfarar Katrínar Myrru eru bæði innlendir og erlendir. Það má segja að hún hafi toppað á réttum tíma, þrotlausar æfingar skiluðu Katrínu Myrru þessum Íslandsmeistaratitli. Rimaskóli óskar Katrínu Myrru til hamingju með árangurinn og horfir með eftirvæntingu að eiga hana að í Skólahreystiliðinu okkar næstu árin (HÁ) |
|
Frábær söng-og dansatriði á föstudagsfjöri 3-B |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
föstudagur, 05 mars 2010 15:15 |
 Nemendur Steinunnar í 3-B tóku sig vel út á sviðinu þegar þau héldu föstudagsfjörið sitt fyrir troðfullum sal áhorfenda. Michael Jackson klæðnaður; hvítar skirtur, svartir hattar og hvítir hanskar. Fjörið byrjaði með glæsilegum dansi þar sem nemendur bekkjarins dönsuðu um allt svið og umhverfis áhorfendur á gólfinu. Allir sem einn með taktinn og sporin á hreinu. Síðan tóku við söngatriði þar sem söngkonurnar Anna og Erla sungu af krafti bæði á rússnesku og ensku. Barndarar og leikrit lentu á milli atriða. Mikið hlegið. Í lokin söng bekkurinn lag Eyfa "Ég lifi í draumi" og átti það vel við þetta unga og efnilega listafólk. (HÁ) |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 10 af 45 |