Rimaskóli fékk Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
mánudagur, 07 júní 2010 22:14
hvatningarverdlaun_menntasvids_2010Skólaverkefnið Smíðaverkstæði í Rimaskóla var eitt sex þróunar-og nýbreytniverkefna í skólastarfi sem hlaut Hvatnigarverðlaun menntaráðs Reykjavíkur 2010 við hátíðlega athöfn í Rimaskóla í gær. Það eru þær Sigrún Blomsterberg þroskaþjálfi og Rósa Vigfúsdóttir stuðningsfulltrúi sem eiga heiður að þessu verkefni á og hafa þróað það með árangursríkum hætti í vetur. Markmið smíðaverkstæðis í upphafi var að gera frímínúturnar auðveldari fáeinum nemendum skólans sem áttu það þráfaldlega til að lenda í útistöðum á þessum viðkvæmasta tíma skóladagsins. Í skála 6 var komið upp frábærri vinnuaðstöðu með þremur hefilbekkjum, spýtum, sögum, hömrum, nöglum, pússikubbum og málningu. Helgi skólastjóri ásamt þeim Sigrúnu og Rósu tók við viðurkenningunni úr hendi Kjartans Magnússonar formanns menntaráðs. (HÁ)
 
Glæsileg leiksýning 6. bekkjar í Grenndarskógi Rimaskóla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
föstudagur, 04 júní 2010 17:05
ronja i grenndarskogiAllir nemendur 6. bekkjar Rimaskóla, sól og 20 stiga hiti og dýrðlegur fuglasöngur voru í aðalhlutverki þegar leikritið Ronja Ræningjadóttir var sýnt í grenndarskógi skólans í Nónholti innst í Grafarvogi. Það var Eggert Kaaber leikari og kennari við Rimaskóla sem útbjó leikgerðina og leikstýrði krökkunum. List-og verkgreinakennarar skólans þau Jónína Margrét, Haraldur Hrafnsson og Maggi Kjartans höfðu umsjón með sviðsmynd, búningum og tónlist. Nemendum Rimaskóla var boðið að sjá leiksýningarnar sem urðu þrjár. Fjöldi foreldra og ættingja þáðu einnig boðið og áttu ekki orð yfir hrifningu sinni með frábært framtak skólans. Sýningi var stórkostleg hjá krökkunum í þessari einstöku paradís sem grenndarskógur Rimaskóla er árið um kring. (HÁ)
 
Heimsókn í hljóðver Magga Kjartans Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
miðvikudagur, 02 júní 2010 13:33
3_bekkur_I_hjodveriÞað var mikið og skemmtilegt ævintýri sem nemendur 3. bekkjar fengu að upplífa með heimsókn í hljóðver Magga Kjartans nú í lok skólaárs. Krakkarnir í 3. bekk hafa verið nemendur Magga á vorönn í Rimaskóla og staðið sig frábærlega í söngnum. Magnús átti frumkvæði að því að stefna þeim í stúdíó og taka þar upp þeirra fallega og einlæga söng. Auk þess að syngja inn á geisladisk tvö lög þá fengu nemendur 3. bekkjar að kynna sér öll þau tækniundur sem leynast í einu alvöru hljóðveri. Kennarar fylgdu krökkunum í heimsókninni og voru eins og krakkarnir fullir "þakklætis" í lokin (HÁ)
 
Dagur Ragnarsson skákmeistari Rimaskóla 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
föstudagur, 28 maí 2010 16:55
skakmot rimaskola 2010Á fjölmennu og sterku skákmóti Rimaskóla 2010 varð Dagur Ragnarsson 7-A skólameistari. Dagur tók við verðlaunum úr hendi Hjörvars Steins Grétarssonar sem hafði unnið mótið í sjö ár á undan nánast samfellt. Dagur stóð einn uppi sem sigurvegar á mótinu. Hann fékk 5,5 vinninga af 6 mögulegum. Í næstu sætum komu félagar hans í Íslandsmeistarasveitum skólans 2009 og 2010. Jón Trausti Harðarson 7-A varð annar á mótinu með  5 vinninga. Hrund Harðardóttir 8-T, Oliver Aron Jóhannaesson 6-C og Kristófer Jóel Jóhannesson 5-C fengu 4,5 vinninga. Hrund vann stúlknaflokkinn örugglega en í næstu sætum urðu bráðefnilegar skákkonur með 3 vinninga, þær Tinna Sif Aðalsteinsdóttir 2-B , Nansý Davíðsdóttir 2-B, Ásdís Birna Þórarinsdóttir 2-B, Heiðrún Anna Hauksdóttir 3-D og Svandís Rós Rikharðsdóttir 4-C. Tefldar voru sex umferðir.
Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 45