|
Flugvélakossar í yngstu bekkjum |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
þriðjudagur, 15 desember 2009 13:02 |
 Ingibjörg Vilbergsdóttir barnabókahöfundur heimsótti Rimaskóla síðustu vikuna fyrir jól og bauðst til að lesa fyrir yngstu nemendur skólans úr nýrri bók sinni Flugvélakossar sem vakið hefur athygli fyrir skemmtilegan texta og frábærar myndskreytingar.Bókin fjallar um væntumþykju og vináttu sem berst heimsálfa á milli, efni sem á vel við nú í kringum jólahátíðina. Rimaskóli þakkar Ingibjörgu fyrir heimsóknina og að gefa sér tíma til að lesa fyrir þakkláta nemendur. (HÁ)
|