|
Söngfuglar gleðja vistmenn á Skjóli og Eir |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
föstudagur, 18 desember 2009 10:00 |
 Í aðdraganda jólanna var sönghópi stúlkna í 5. og 6. bekk Rimaskóla boðið að heimsækja hjúkrunarheimilin Skjól og Eir til að gleðja vistmenn með jólalögum og jólakveðjum. Á báðum þessum stöðum hafa stúlkurnar sannarlega aukið á hróður skólans með fallegum og einlægum söng og fyrirmyndar framkomu. Stúlkurnar sungu bæði hressileg og hátíðleg jólalög. Á eftir færðu þær vistmönnum jólakort sem þær höfðu sjálfar búið til og skrifað undir fallega jólakveðju. Þakklátir áheyrendur sýndu það áþreifanlega að heimsókn stúlknanna þótti einstök, gefandi jólakveðja sem færði fögnuð gamla fólkinu fögnuð í hjarta. (HÁ)
|