Jólin koma í Rimaskóla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
föstudagur, 18 desember 2009 16:08
jolin koma i rimaskolaÍ Rimaskóla voru haldnar þrjár fjölmennar jólaskemmtanir fyrir nemendur skólans í 1. - 7. bekk. Á dagskrá var helgileikur sem nemendur 4. bekkjar léku "eins og englar". Jólaleikritið var líkt og í fyrra leikið af nemendum 6. bekkjar. Undir leikstjórn Eggerts Kaaber var sýningin Jólin koma á dagskrá, byggð er á jólasveitnavísum Jóhannesar úr Kötlum. Leikritið var bráðskemmtilegt og vel leikið að hálfu nemenda. Nemendur og starfsmenn voru allir komnir i mikið jólastuð þegar hér var komið sögu. Því kom það ekki á óvart hversu hressilega krakkarnir sungu og tóku þátt í þegar gengið var kringum jólatréð við undirleik Jónasar Þóris tónmenntakennara. Allir voru sammála um að skemmtunin hefði tekist frábærlega. (HÁ)