Framhaldsskólakynning Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
þriðjudagur, 02 febrúar 2010 09:03

Framhaldsskólakynningin verður fimmtudaginn 4. febrúar n.k. á sal Borgarholtsskóla frá kl. 17:30 –19:00.

Náms- og starfsráðgjafar í Grafarvogi, Mosfellsbæ og á Kjalarnesi standa að sameiginlegri kynningu á framhaldsnámi. Kynningin er gott tækifæri fyrir nemendur í 9. og 10. bekk og forráðamenn þeirra, að kynna sér á einum stað framhaldsnám það sem í boði er á höfuðborgarsvæðinu.

 

Fyrirkomulagið verður með þeim hætti, að hver framhaldsskóli verður með kynningarsvæði og fulltrúa á staðnum. Nemendum og forráðamönnum þeirra gefst þannig tækifæri til að rölta á milli og ræða við fulltrúana og kynna sér hvað hver skóli hefur upp á að bjóða.

 

Framhaldsskólarnir sem boðað hafa komu sína eru:

Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Iðnskólinn í Hafnarfirði, Tækniskólinn, Kvennaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn Hraðbraut, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn við Sund og Verslunarskóli Íslands.