Rimaskólaliðið öflugt í Skólahreysti Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
föstudagur, 26 febrúar 2010 14:08
rimaskoli. i skolahreystiUndankeppnin í Skólahreysti stendur nú yfir. Lið Rimaskóla keppti í fjölmennasta riðlinum og stóð sig gríðarlega vel. Rimaskóli lenti í 2. sæti af 16 skólum með 77,5 stig aðeins fyrir neðan Ölduselsskóla. Rimaskóli á mikinn möguleika á að komast í  úrslitakeppnina 29. apríl í Laugardalshöll líkt og í fyrra. Í hinu öfluga liði Rimaskóla voru þau Margrét Unnur 9-U, Ratthaphon 10 - S, Sturla Snær 10 - S og Erla Dögg í 8-U. Keppnin var æsispennandi allan tímann og það var síðasta greinin sem féll með Rimaskóla og kom liðinu í 2. sætið. Stuðningsmannalið Rimaskóla var fjölmennt, íklætt fagurgulum bolum og með hvatningarskilti. Þjálfarar krakkannna eru kennararnir Ninna og Eyrún. www.skolahreysti.is (JÓ)