| Bókasafn |
|
|
|
| Höfundur: Administrator |
| fimmtudagur, 03 júlí 2008 17:49 |
|
Bókasafn Rimaskóla Skólasafn Rimaskóla er staðsett miðsvæðis á jarðhæð skólans.Safnið er opið daglega frá 8:10 - 15:00 nema á föstudögum frá 8:10 – 14:30. Skólasafnið er upplýsingamiðstöð skólans í fræðslu og upplýsingaleit, jafnt fyrir nemendur og kennara. Starfsemin samanstendur af, safnkennslu, heimilda- og upplýsingaleit, útlánum og lestri. Safnið er tengt landskerfi bókasafna, Gegni. Safnkostur Á safninu eru alls um 8000 bækur sem skiptast í skáldsögur og fræðibækur. Á safninu er einnig að finna: hljóðbækur, geisladiska, spil, myndbönd og tímarit ásamt kennsluleiðbeiningum og öðrum gögnum fyrir kennara. Á safninu eru staðsettar 8 tölvur sem notaðar eru m.a. í safnkennslu og þar sem nemendur geta komið og leitað upplýsinga á netinu og unnið að verkefnum. Reglur Öllum er frjálst að skoða og lesa bækur og rit á safninu. Við göngum hljóðlega um og tökum tillit til annarra Við förum vel með safngögn og göngum frá öllu á sinn stað eftir okkur Við borðum ekki nestið okkar á safninu Útlánstími er tvær vikur Fræðibækur eru ekki lánaðar út af safninu nema til heimildavinnu í skólanum. |




