Forsíða
Rimaleikar 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
miðvikudagur, 08 september 2010 13:35
rimaleikar 2010Rimaleikar voru haldnir 7.september í  7.-10.bekk. Nemendum var skipt í mismunandi lið sem hvert innihélt einn nemanda úr hverjum bekk.  Áttu liðin síðan að leysa ýmsar þrautir s.s.  sippa, stígvélakast, skutlukast, limbó, körfuskot, látbragðsleik, kubbabyggingu, poko og hlaup. Liðin áttu að velja fyrirliða og finna út hver væri sterkastur fyrir hverja þraut og fengu síðan stig fyrir frammistöðu en einnig fyrir liðsheild. Markmið leikanna var að efla hópkennd nemenda en einnig að kenna nemendum að allir væru góðir í einhverju og enginn væri góður í öllu. Tókust þessir Rimaleikar afbragsð vel og mátti varla sjá hvor hópurinn skemmti sér betur, kennarar eða nemendur.
 
Sjötti sigurinn í röð hjá nemendum Rimaskóla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
miðvikudagur, 08 september 2010 12:31
grafarvogshalupidGrunnskólahlaupið á Grafarvogsdegi var þreytt í 6. sinn á laugardaginn. Að þessu sinni var hlaupið við bestu aðstæður við íþróttamiðstöðina í Dalhúsum. Sex af átta grunnskólum hverfisins tóku þátt í spennandi hlaupi. Fjórtán nemendur úr 1. – 7. bekk, einn strákur og ein stelpa í hverjum árgangi mynda hvert skólalið. Líkt og áður þá tóku Rimaskólakrakkarnir strax forystu í hlaupinu og létu hana aldrei af hendi.  Eyrún íþróttakennari var liðstjóri Rimaskóla eins og í öll skiptin áður. Frábær frammistaða hjá henni og þessum fjórtán afrekskrökkum.
 
Skáksveit Rimaskóla - Norðurlandameistarar 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Höfundur: Web Admin   
mánudagur, 06 september 2010 10:08

nordurlandameistarar 2010Íslandsmeistarasveit Rimaskóla í skák náði frábærum árangri á Norðurlandamóti  barnaskólasveita sem fram fór í Osló nú um helgina. Sveitin tefldi við bestu skáksveitir hinna Norðurlandanna og vann mótið nokkuð örugglega, tapaði engri viðureign og fékk 15,5 vinning af 20 mögulegum. Danska sveitin fylgdi Rimaskólasveitinni fast eftir á mótinu og endaði með 14 vinninga en aðrar sveitir voru þessum löndum langt að baki. Í sveit Rimaskóla eru gríðarlega efnilegir skákmenn á aldrinum 11 - 13 ára gamlir, ný kynslóð skákmeistara skólans; þeir Dagur Ragnarsson, Jón Trausti Harðarson, Kristinn Andri Kristinsson og bræðurnir Oliver Aron og Kristófer Jóel Jóhannessynir. Þjálfari þeirra er hinn 17 ára gamli Hjörvar Steinn Grétarsson, margfaldur Íslandsmeistari og Norðurlandameistari  með Rimaskóla og nýbakaður landsliðsmaður í skák. Fararstjóri liðsins líkt og á fyrri Norðurlandamótum var Helgi Árnason skólastjóri. Lið Rimaskóla vann Íslandsmeistaratitil barnaskólasveita annað árið í röð í mars sl. og hafa strákarnir í liðinu æft stíft meira og minna síðan. Skáksveitin fékk styrk frá Menntasviði Reykjavíkurborgar til þátttöku í mótinu og góða aðstoð frá Skákakademíu Reykjavíkur við æfingar. (HÁ)

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 60