|
|
|
Skákkennsla á skólatíma í 3. - 6. bekk |
|
|
|
|
Höfundur: Web Admin
|
|
fimmtudagur, 02 september 2010 15:27 |
 Í samstarfi við Skákakademíu Reykjavíkur verður nemendum í 3. - 6. bekk Rimaskóla boðið upp á skákkennslu í vetur. Nemendur í 5. og 6. bekk fá eina kennslustund á viku helming skólaársins. Yngri nemendur í 3. og 4. bekk fá styttri námskeið að jafnaði einu sinni í mánuði. Kennslan í 5. - 6. bekk er þegar hafin og er það Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari og einn af landsliðsmönnum Íslands í skák sem leiðir kennslutímana. Markmið kennslunnar er að kynna nemendum með áhugaverðum hætti skáklistina og að þeir læri undirstöðuatriðin. Um 20 grunnskólar í Reykjavík eru í samstarfi við Skákakademíuna á þessu skólaári. (HÁ) |
|
Höfundur: Web Admin
|
|
föstudagur, 27 ágúst 2010 10:47 |
|
Dagana 30. ágúst – 1. september er foreldrum boðið ásamt nemendum á kynningarfund í Rimaskóla. Þar munu stjórnendur og umsjónarkennarar skólans kynna skipulag skólastarfsins. Stjórn Foreldrafélagsins kynnir málefni félagsins og sér um kjör bekkjarfulltrúa.
Sjá nánar |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 59 |